Rannsókn á lygi – og ást

Hvað gerist þegar fals mótar sál og samfélag? Hvernig verpist veruleikinn þegar lygin tekur yfir? Hvernig farnast fólki þegar það er kramið af kerfisvaldi sem aðeins leyfir eina túlkun og eina skipan veraldar – en ekki fjölbreytileika?

Ekki gleyma mér er minningabók Kristínar Jóhannsdóttur sem fjallar um þessi stóru stef. Í bókinni rifjar hún upp námstíma sinn í klofnu Þýskalandi, í Freiburg, Leipzig og Berlín. Námstími erlendis er jafnan umbrotatími í lífi fólks og var í lífi Kristínar mjög dramatískur. Hún segir frá námsgreinum sem hún stundaði. Samanburður á menntunaráherslum báðum megin járntjalds er athyglisverður. Kristín teiknar upp pólitík og með sérlega athyglisverðum hætti samfélagsgerð hins kommúníska þjóðfélags. Svo læðist ástin og tengslin við fólk á milli lína og litar allar blaðsíður Ekki gleyma mér. Þrá, miklar tilfinningar, snerting, unaður, eftirsjá, sorg koma við sögu.  

Það sem snart mig m.a. í bók Kristínar er líf í lygi. Ekki lygi einstaklingsins heldur samfélagi lyganna sem síðan gerir fólk falskt. Samfélagið í Stasi-landinu austan járntjalds var hræðilegt kúgunarsamfélag. Fólkið var alls konar en samfélagsgerðin var á kostnað lífsgæða og lífshamingju. Allir sem bjuggu austan tjalds voru hugsanlega njósnarar. Tortryggnin læddist því um. Ástin var full af grun um svik. Óttinn við fals var alltaf með í för og alls staðar. Lífið var hamið í samfélagi lyganna. Lygasamfélag varð harmafélag og tilfinningalegt sóunarfélag. Samfélagsgerðin bjó til sorgbitið fólk. Barnið dó en hefði mátt lifa. Líf hefði geta orðið hamingjuríkt en grunsamfélag lyginnar hindraði. Bók Kristínar Jóhannsdóttur Ekki gleyma mér er heillandi og vel skrifuð minningabók sem opnar margar gáttir. Opinská úrvinnsla höfundar er trúverðug. 

Við reynum öll að vinna úr aðstæðum, tengslum, tilfinningum og stöðu í samfélagi. Við veljum og stundum úr óljósum kostum í flóknum aðstæðum. En líf í lygi er líf í álögum og leiðir til óhamingju og áfalla. Stasilandið var vont samfélag fólks og það féll. Ekkert samfélag er fullkomið en okkar er skyldan að beita okkur fyrir að þjóðfélag og samfélagsgerð þjóni sem flestum og tryggi möguleika fólks til að elska, tengjast, vinna, menntast og nýta hæfni og gáfur sem best. Samfélag er félag um það sem við eigum saman; gildi, mennsku, menningu, frelsi og ábyrgð. Stasilandið féll en skammsýnir villumenn reyna gjarnan að búa til eigin hömlulönd, hvort sem það er Pútínland, Trumpland, XI-land, ofbeldisfjölskylda á Akureyri eða meðvirknisfjölskylda í Hlíðunum. Ástin fæddist í Stasilandi en veslaðist upp og dó. Ástin lifnar alls staðar þar sem fólk er og á að fá að dafna, nærast og lifa.

Kristín Jóhannsdóttir: Takk fyrir heiðarleikann og þar með merkilega bók sem vekur marga þanka um dásemdir lífsins.

Meðfylgjandi mynd er af forsíðu bókarinnar. 

Ég talaði um Stasilandið í prédikun fyrir nokkrum árum og hægt að nálgast ræðuna að baki þessari smellu.

Guð sem yrkir heiminn, líf og menn

Bókmenntaunnendur þekkja orðið “póesía,” Orðið, sem notað er um ljóð í mörgum tungumálum, er af sömu rót. En að baki öllum póetískum ljóðnefnum og ljóðafleggjurum er hið fallega gríska orð poiesisποίησις. Það er ekki aðeins snoturt á blaði, heldur þrungið fallegri merkingu. Það táknar ekki aðeins að stafla orðum í ljóð, heldur líka hitt að búa til með höndum, vinna, kalla fram líf og hlúa að því. Að ljóða er að gera, að skapa, framkvæma. Að ljóða er líka það að tengja himin og heim.

Meðal Grikkja og Hebrea var póesía ekki aðeins huglægt verk, heldur náði til fóta, handa, starfa, sköpunar, já raunveruleika og lífsbaráttu fólks. Handverk fólks var aldrei sálarlaus iðja heldur átti sér líka andlegar víddir. Þessi speki er hagnýt. Handverk við tölvu, í eldhúsi, garði, námi, við bleyjuskipti, já öllu ati lífsins á sér andlega hlið. Hin dýpsta speki sem við kunnum að hugsa lifir ekki nema hún eigi sér hagnýta skírskotun í pólitík, í listum og í deiglu samfélagsins. Lífið er eitt og fólk fornaldar vissi að lífið á sér framvindu, bæði andlega og efnislega. Allt er tengt og allt er á hreyfingu. Lífið var og er gjörningur, samfelld póesía.

Í öllum bókum Biblíunnar er minnt á, að Guð er ekki fjarlæg, upphafin vera, heldur ástríðupersóna, sem elskar, grætur, faðmar, gleðst og syrgir. Samkvæmt kristninni er Guð svo tengdur að þegar allt var brotið í mannheimi sat Guð ekki hjá heldur kom til að þurrka tár, lækna mein og skapa grundvöll lífsins. Guð skapar fólk til frelsis og yfirgefur okkur aldrei þrátt fyrir okkar bresti. Já, Guð er stórskáldið sem yrkir heiminn, yrkir mennina, nýtur lífsins, er sjálfur hin mikla póesía lífsins, líka þegar allt er þrotið, búið, týnt og brotið. Fagnaðarerindið er hin mikla póesía Guðs að lífið er góður gerningur, póesía elskunnar. Þegar lífi lýkur er þessi ljóðmögur mættur, opnar fangið og leyfir öllu fólki, já allri sköpun sinni inn í himininn.

Textinn er úr minningarorðum frá 2008. Meðfylgjandi mynd tók ég á sýningu á verkum Birgis Andréssonar.

 

 

Maríuerla

Maríuerlan – motacilla albaer – er dásamlegur fugl. Fyrir fjórtán árum gerði maríuerlupar hreiður á leynistað sem við fjölskyldan þekkjum. Síðan hefur verið orpið þar á hverju ári. Öll vorin hef ég velt vöngum yfir hvort þau kæmu og vitjuðu heimahreiðursins. Eitt vorið komu þau seint en komu þó að lokum og mér var létt.  Ekki veit hvort það eru sömu fuglarnir sem hafa ratað svona vel og áfallalaust frá V-Afríku á hverju ári eða bara fundvísir snilldarfulgar sem leita að fallegum, fæðuríkum stað með góðu útsýni og færum leiðum fyrir smáfugla í flugnámi eða á flótta undan ránfuglum. Kannski er þetta ættaróðal sem kynslóðir vitja. En dásamlegir eru ungar þessa árs sem störðu á mig þegar ég færði símann að þeim til að taka mynd. Mamman var skelkuð álengdar fjær – með gogginn fullan af mat til að færa ungviðinu. Ég flýtti mér því og sagði henni að óttast ekki. Hún flaug strax til þeirra þegar ég fór. Lífið lifi.

Myndin hér að neðan er frá sama stað árið 2010. Þá voru sex ungar í hreiðrinu en fimm í ár.  Svo er önnur af áhyggjufullu foreldri að fylgjast með ljósmyndaranum nærri hreiðrinu. 

Lax og sprengdar/marðar kartöflur

Þessa dásamlegu laxuppskrift fann kona mín í færeysku heimilistímariti – Búumvel þeirra Færeyinga. Mér þótti skemmtilegt að lesa uppskriftina og meðlætið er knúst epli. Það eru ekki trjáepli heldur jarðepli sem eru notuð. Karföflurnar eru marðar lítillega þegar búið er að forsjóða þær.

Byrjið á kartöflusuðunni. Sjóðið í 10-15 mínútur allt eftir stærð kartaflanna . Kveikið á ofninum og stillið á 175°C. Vindið ykkur síðan í maukgerðina. Ég viðurkenni að ég íslenskaði uppskriftina lítillega að eigin geðþótta og kryddunarsmekk. 

Fyrir fjóra

4 laxaflök eða 800 gr – helst nýr villtur lax

2 skalottulaukar

1 púrrulaukur

4 vorlaukar

3 hvítlauksrif

½-1 fennikel

300 gr rjómaostur

1 dl mjólk – eða matreiðslurjómi

1 msk sítrónusafi

1 dillbúnt

1 tsk salt

½ tsk nýmalaður pipar

2 tsk capers

Hreinsið fiskinn, roðflettið og skerið íhæfileg stykki. Saxið púrrulauk, skalottulauk og vorlauk þokkalega fínt og hvítlauk fínt. Fennel skorið örþunnt. Steikja síðan allt hið skorna í olíu á pönnu í þrjár til fjórar mínútur. Færið síðan yfir á olíuborið og hitaþolið fat. Laxstykkjunum er komið fyrir ofan á lauk-fennel-maukinu. Sítrónusafinn fer yfir laxinn og síðan er saltað og piprað eða kryddað með uppáhalds laxkryddi kokksins. Saxið svo dillið. Hellið mjólkinni/rjómanum í matvinnsluvél og setjið rjómaostinn líka í matvinnsluvélina. Setjið síðan megnið af dillinu út í en það sem eftir er af dillinu verður notað sem skreyting þegar maturinn verður borinn fram. Blandið saman og smyrjið síðan rjómaostblöndunni yfir fiskinn. Fatið er síðan sett í ofninn og steikt í ca. 15 mínútur. Skoðið þykkasta stykkið til að fylgjast með steikingunni og steikið hvorki of lítið né of mikið.

Marðar kartöflur

800 gr – 1 kg karföflur– helst litlar

100 gr smjör

möndlukurl eftir smekk

2 hvítlauksrif

100 gr smjör brætt á pönnu og tvö marin hvítlaukslauf sett út í. Þegar búið er að forsjóða kartöflurnar eru þær færðar í smurt ofnþolið fat og lítillega marðar. Þá saltaðar og kryddaðar ofurlítið og síðan er hvítlaukssmjörinu hellt yfir og möndlukurli líka. Þá er fatið með krömdu eplunum – kartöflunum – sett inn í ofninn síðustu tíu mínúturnar þegar laxinn er að steikjast. Svo eru lax og kartöflur sett á disk og dilli og capers dreift yfir fiskinn.

Bæn: Þökkum Drottni því hann er góður og miskunn hans varir að eilífu.

Verði ykkur að góðu – og lof sé Færeyingum.

CR7 – Cristiano Ronaldo

Til heiðurs CR7. Fótafimi Ronaldo er óumdeild, einbeitni hans og fagmennska. Við feðgar deilum oft um knattspyrnu og höfum ólíkar skoðanir á félögum, iðkendum, stjórum og hvað skiptir mestu máli í boltanum. En við erum sammála um að Ronaldo er einn mesti íþróttamaður okkar tíma. Ég dáist að því hve mikla töfra karlinn hefur í tánum en hef í gegnum tíðina stundum verið rasandi yfir sjálfhverfu kappans og furðað mig á að hann hafi ekki enn unnið með sársauka litla drengsins. Orðið svona herfilega misþroska. En svo gekk hann inn á Laugardalsvöll og var góður við börnin og íþróttagoð. CR7 var sólin í stjörnuliði Portúgala. Við klöppuðum öll honum lof og tjáðum þakklæti fyrir hið góða – en hitt ekki. Markið hans var óþarfi en hann hefur enn töfra í tánum. Myndirnar tók ég í Laugardal 20. júní á landsleik Íslendinga og Portúgala.