Lambakjöt er stundum á borðum í mínum bæ. En skankar eru almennt vannýtt hráefni og hér er góð og auðveld uppskrift. Þetta er matarmikill réttur fyrir kalda vetrardaga og á að vera stórskorinn! Skanka má alltaf fá í Melabúðinni.
Hráefni
1-2 kíló skankar eða magurt súpukjöt
4-5 eða fleiri hvítlauksrif stungin í kjötið
salt og pipar eftir smekk
2 eggaldin
3 paprikur, í mismunandi litum
vorlaukur
rauðlaukur
púrrulaukur
3-4 stilkar sellerí
1 fennikel
allt saxað mjög gróft / 3-5 cm bitar – alls ekki í smábita
Tómatsósa:
1-2 fínhakkaður laukur – steiktur í ólífuolíu
2 dósir niðursoðnir tómatar
hunangssletta
2 lárviðarlauf
Tímían
1/2 dós ansjósur
2 hvítlauksrif
1 bolli rauðvín
salt og pipar
látið malla
Saxaða grænmetið fer á botn á stóru olíusmurðu ofnfati (lokanlegu). Tómatsósan fer síðan yfir og kjötið þar yfir. Lokið á og fatið síðan sett í ofninn. Bakað fyrst í 15 mínútur við 250 gráður en hitinn síðan lækkaður í 200 gráður og bakað áfram í 1-1 1/2 tíma.
Borið fram með kúskús eða byggi.
Borðbæn: Þökkum Drottni því að hann er góður / og miskunn hans varir að eilífu. Amen