Við hjónin vorum á leiðinni úr vegan-skeiði og Elín mín hvíslaði á koddanum að hana langaði svo í kjúlla „annað kvöld, einhverja óvænta útgáfu“ bætti hún við. Og þá var ekki annað í boði en að finna það sem gæti hugnast henni. Ég fletti og fann uppskrift í ljómandi riti Úlfars Finnbjörnssonar, sem heitir Stóra Alifuglabókin. Klettakálspestóið var gert skv. tillögu hans en ég bætti reyndar basiliku við. Ég mæli þó frekar með venjulegu pestói – það er fínlegra en rúkkóla-pestó. Fimm stjörnur var stjörnugjöfin – svo ég held áfram að taka við pöntunum á koddanum. Það er gott að elda fyrir mitt fólk. Það tekur vel við og kann að þakka með fögrum umsögnum og mörgum stjörnum. Hið hnyttna heiti “trans-vegan” kemur frá Sigrúnu Óskarsdóttur. Hér er svo uppskriftin í minni útgáfu.
Steiktar kjúklingalundir
Með pestó, spínati og pasta. Fyrir 4.
600 gr kjúklinglundir
2 msk olía
1 kúrbítur
30 snjóbaunir
salt og pipar
1 poki spínat
600 gr soðið pasta
furuhnetur sem má sleppa
Parmesanostur – rifinn sem má líka sleppa
Klettakálspestó
1 poki klettakál
2 msk furuhnetur
2 msk parmesanostur
3 hvítlauksgeirar
1-2 msk ljóst balsamikedik
1-2 msk sítrónusafi
1 msk agavesíróp
salt og pipar
1 ½ dl olía
Aðferð
Kjúklingalundirnar steiktar á pönnu þar til þær eru brúnar. Kúrbítstrimlum og snjóbaunum bætt við og stekt áfram ca 2 mínútur. Bragðbætt með salti og pipar. Ég þurfti að hella ofurlitlu vatni af sem kom frá kúrbítnum. Nokkrum skeiðum af pestó – skv smekk – yfir kjöt og grænmeti á pönnunni og hrært í til að dreifa vel pestóinu. Spínatblöð og volgt pasta á fat og síðan allt af pönnunni yfir pastað. Skreyta með furhnetum og parmesan.
Pestógerðin
Öll hráefnin i matvinnsluvél og maukað vel.
Varðandi pasta
Notaði Thai Rice Noodles sem er glútenlaust og “no cholesterol.” Eftir suðu smelltum við sesamolíu og tamarisósu út í pastað. Það gefur yndislegt bragð og fallegan lit.
Borðbæn
Allt sem í dag er borið borði
blessaðu nú með þínu orði,
eilífi Drottinn; þelið þitt
þvoi og lýsi’ upp hjarta mitt.
(þessa borðbæn samdi Sigurður Ægisson)