Greinasafn fyrir merki: Húsafell

Tallinn-undrið

Danski fáninn féll af himni og Danir unnu orrustuna. Leiðsögumaður okkar í Tallinn í Eistlandi fór á kostum, lýsti undri frá 13. öld og það fór mýtólógískur skjálfti um tilheyrendur. Sögurnar voru skemmtilegar og hlátrarnir hljómuðu. Ég sneri mér við og tilbúinn í fleiri ævintýri. Og þá sá ég Pál í Húsafelli, þann stórkostlega listamann, og við Elín mín eigum meira segja skúlptúr eftir hann. Svo sá ég Helga í Lúmex og kirkjusmið, sem ég dái mjög. Hann hefur ljóshannað tvö hús, sem ég hef átt. Svo var þarna Dagný, prestsfrú, í Reykholti, forkur og sérlega skemmtileg kona. Þar sem hún fer er ekki lengi að bíða Geirs Waage. Jú, hann kom í sínu fínasta pússi. Dannebrog féll á Tallinn og þessir vinir mínir birtust sprelllifandi og með nokkra Dannebrog-furðu í augum. Þau féllu ekki af himni si svona og fluvélalaust, heldur voru þau til að fagna opnun húss til heiðurs Arvo Pärt sem ég met flestum tónskáldum meira. En dóttir Dagnýjar og Geirs er tengdadóttir meistarans Pärt. Heimurinn lítill? Nei, hann er stór og fullur af ævintýrum. Undrin verða á hverjum degi og okkar er að njóta. Takk fyrir líf dásemdanna.

Minning frá 13. október 2018.