Greinasafn fyrir merki: grænkálssnakk

Grænkálssnakk

Grænkál er ofurfæða, mettað vítamínum og næringarefnum. Svo er í því kolvetni, prótein og grænkálið er stútfullt af trefjum. Einfalt er að búa til grænkálssnakk sem flestum þykir bragðgott. Heilsan batnar og skapið líka. 

Innihald:

100 gr grænkál

1 msk olía

Krydd að smekk: t.d. með hvítlaukskryddi, chilli, salt og pipar. Gott hamborgarakrydd gengur líka. Kveikja á ofninum og stilla á 140°C.

Grænkálið er skolað ef þarf. Muna að þerra. Mjúk blöðin eru rifin af stilkum og í 2-3 fersentimetra bita. Ekki rífa of smátt. Olía og krydd sett í skál og blandað. Hella ólíunni yfir grænkálsbitana og hræra vel í svo olían fari á allt kálið. 

Bökunarpappír komið fyrir á ofnskúffu og kálinu komið fyrir á pappírnum. 

Þegar mikið grænkál er bakað er hægt að fara stuttu leiðina með olíuna og kryddið. Þá einfaldlega kem ég rifnu kálinu á pappírinn í ofnskúffunni, skvetti síðan vel af góðri ólífuolíu yfir grænkálið, klessi síðan allt með fingrunum til að olían fari sem víðast, krydda yfir að smekk og klessi síðan allt aftur. Breiði síðan kálið út í plötunni að nýju. 

Kálið bakað í ofninum í 20-25 mínútur. Hafið auga á kálinu og metið hvenær það er stökkt og fullbakað.

Næring í 100 gr; kolvetni: 30 gr; prótein: 17,5 gr; fita: 48,7 gr; trefjar: 15,5 gr

Helgamagga er með ljómandi útgáfu og frá henni fékk ég næringarlistann.