Inga fæddist 28. september árið 1933. Foreldrar hennar voru Filippía Sigurlaug Kristjánsdóttir og Valdimar Jónsson. Hún úr Svarfaðardal og hann upprunalega úr Hólminum. Eftir barnaskóla fór Inga austur í Lauga í Reykjadal til náms og naut þar Sigurðar, móðurbróður síns, sem þá var komin í Lauga. Hún lauk gagnfræðaprófi árið 1949 og stundaði síðan nám við húsmæðraskóla í Svíþjóð árið 1951 og vann svo um tíma í Skandinavíu. Inga lauk hjúkrunarnámi á Íslandi í mars árið 1958. Síðan starfaði hún næstu ár við hjúkrun víða, á mörgum sjúkrahúsum og stofnunum á landsbyggðinni og í Reykjavík. Hún vann sem hjúkrunarfræðingur – hjúkrunarkona eins og kollegar hennar nefndust þá – á sjúkrahúsinu á Patreksfirði 1958 – 59. Þar á eftir fór hún á Akranes, til Vestmannaeyja og vann síðan á Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund og svo á Hvítabandinu frá 1962-64. Svo birtist Ágúst Eiríksson og þau gengu í hjónaband 20. júlí árið 1966. Ágúst var lagður inn á spítala vegna kviðslits. Inga var á næturvakt og Ágúst var þjáður og hún sá aumur á honum, gaf hönum pillu svo hann gæti hvílst og sofið. Ágúst var starsýnt á hjálparengilinn. Þegar hann var upprisinn fór hann í Klúbbinn og þar var engillinn mættur. Hann bauð henni í dans og þau dönsuðu síðan saman. Svefntafla varð upphafið að löngum og ástríkum hjúskap.
Inga var góður fagmaður í hjúkrun ávann sér virðingu samstarfsfólks í starfi. Henni var treyst og gjarnan kölluð til ábyrgðar. Henni var m.a. boðið yfirmannsstarf á Heilsuverndarstöðinni en Ágúst hafði löngun til að fara austur fyrir fjall. Inga studdi alltaf sinn mann og fór með honum austur. Þau settust að í Biskupstungum. Það var ekki einfalt að kaupa heila garðyrkjustöð. Þau Inga voru stöndug og ábyrg í fjármálum og svo kom móðurbróðir Ingu þeim til hjálpar. Þau Ágúst ráku garðyrkjustöðina Teig í Laugarási í tuttugu og sjö ár, frá 1970-1997.
Inga vann í fyrstu við Heilsugæslustöðina í Laugarási sem þjónaði uppsveitum Árnessýslu. Hún ávann sér traust allra sem til hennar leituðu. Það veit ég af veru minni í Skálholti og ég hitti marga sem höfðu notið alúðar Ingu og umhyggju. Síðari árin vann Inga á sjúkrahúsinu á Selfossi. Þegar Inga bað einhvern um að vinna á næturvakt eða aukavakt var erfitt að neita bón hennar því hún byggtt upp traust í samskiptum. Þegar hún lauk störfum á Selfossi var haldið hóf á sjúkrahúsinu og allt samstarfsfólk hennar mætti.
Þau Inga og Ágúst tóku að sér fóstursoninn Þórhall Jón Jónsson (21. apríl 1967 – 13. apríl 2023) sem lést á síðasta ári. Allir sem kynntust Ingu og Ágústi dáðust að nærgætni og elsku sem þau veittu Þórhalli. Þökk sé þeim. Sonur Ágústs er Elvar Ingi. Guð geymi Ingu í eilífð sinni og styrki Ágúst og alla ástvini.
Útför Ingu var gerð frá Kapellunni í Fossvogi. Minningarorð fluttu m.a. Valdimar Helgason og Ásgeir Helgason. Duftker Ingu verður jarðsett í Gufuneskirkjugarði.