Gibson – passían og Jesús Kristur

Voru hýðingar, pústrar og blóðsúthellingar sem Jesús Kristur leið á förinni til Golgata nauðsynlegur þáttur guðsríkisins? Ef Jesús hefði sloppið við líkamlega þjáningu fram að krossfestingunni hefði hjálpræðisverkinu þar með verið klúðrað? Er þjáning og dauði Jesú meginatriði trúarinnar? Eða er það líf Jesú eða eitthvað annað? Hvert var og er hlutverk Jesú?

Kvikmynd Mel Gibson um þjáningu Jesú er rosaleg píslarsaga. Blóð Jesú slettist á stéttar og torg. Hægra auga Jesú bólgnar nánast úr augntóttinni. Vargfugl goggar í augu ræningjans á krossinum. Friðlaus andi Júdasar veinar. Hermenn píska Jesú látlaust alla leið frá Getsemanegarði um hallir trúarleiðtoga og veraldlegra valdsmanna og til aftökustaðar. Jesús er hæddur og lítillækkaður og á hann er lagt þyngra tréfarg en á ræningjana. Kona sem ætlar að líkna bandingjanum er hrakin á brott. Þyrnikórónónu er ekki tyllt á höfuð Jesú heldur lamin í höfuleður hans. Hermenn ganga í skrokk bandingjans langt umfram heimild. Gripgaddar svipanna slíta húð og kjötstykki í barsmíðinni. Blóðið frussast yfir böðlana og hleypur í augu áhorfenda í langdregnu píslarsenum.

Eru svona pyntingar nauðsynlegur til að gleðiboðskapur skiljist? Er þessi aðferð blóðbaðsins sú skásta til boða myndfíknu nútímafólki frelsisverk Jesú Krists? Þarf að toppa ofbeldismyndir til að boða lausnarann? Þarf að lengja hinar líkamlegu senur svo mjög að okkur sé hætt við uppsölu vegna þess sem dregið er upp á tjaldið? Hvert er hlutverk trúarlegrar ofbeldismyndar?

Píslarsaga Gibson getur hentað til sýningar meðal ungmenna sem eru uppalin í ofbeldiskúltúr unglingamyndanna. Hún er ljómandi tilefni til umræðu um ýmsa Jesúþætti og tækifæri til samræðu um hlutverk og eðli Jesú. Hún beinir sjónum að mennsku Jesú. En hún er ekki góð guðfræði vegna þess að verk Jesú Krists er ekki fólgið í hversu hann leið líkamlega. Í því er einn vandi myndar Gibsons að hún hleypir blóðinu í augu okkar og við sjáum því ekki hlutverk lífs og dauða Jesú nægilega vel. Fókus myndarinnar er písl en ekki líf. Við þurfum að þurrka blóðið úr augum og skoða hver Jesús var og er því við sjáum aðeins brot af sögu hans í Gibsonpassíunni. Hvað var það sem Jesús bað að við gerðum í hans minningu? Örugglega ekki að fara í bíó en kannski getur þessi mynd dýpkað veruleika Jesú í lífi okkar og við séð hann betur. 

Innlögn fyrir sýningu á mynd Mel Gibson árið 2004.