Þá dettur mér Jón Dalbú Hróbjartsson í hug þegar ég heyri góðs manns getið. Hann er velgerðarmaður minn og fyrirmynd. Í dag á Jón Dalbú afmæli. Hann fæddist 13. janúar, 1947.
Ég hef þekkt hann frá því á sjöunda áratug síðustu aldar og notið leiðsagnar og vináttu hans þaðan í frá. Hann er ekki aðeins mannkostamaður, dugmikill, framtakssamur frumkvöðull og hugmyndaríkur leiðtogi heldur líka þroskaður trúmaður. Í honum býr hrein og hrífandi þjónustulund sem nýttist prestsþjónustu hans með einstöku móti og til eftirbreytni. Manngæska Jóns Dalbú hefur alla tíð blasað við öllum sem hafa kynnst honum. Góðvildin er honum gefin í vöggugjöf og uppeldi en hann ræktaði með sér einstaka mannvirðingu sem hrífur alla sem sjá gullið í fólki. Því hefur Jón Dalbú verið svo elskaður og farsæll í einkalífi og opinberum störfum. Hann þjónaði sem prestur í fjörutíu ár og gegndi afar mörgum ábyrgðarstörfum. Vegna mannvirðingar hans hefur hann alltaf lyft öðrum og lofað. Með hug og dug samfara mannelsku hefur Jón Dalbú alla tíð komið málum áfram og hvatt til stórvirkja. Svo er Jón Dalbú sérlega músíkalskur og vel spilandi píanóleikari. Kona Jóns Dalbú er Inga Þóra Geirlaugsdóttir, mannkostakona, sem hefur eflt mann sinn og hvatt til dáða með elskublik í augum.
Takk og til hamingju með daginn kæri vinur.
Myndin er tekin þegar prestaskipti urðu í Hallgrímskirkju í lok árs 2014. Jón Dalbú lét af störfum eftir 17 ára þjónustu í Hallgrímskirkju og ég hóf þjónustu 1. desember 2014.