Fréttablaðið sendi fimm spurningar til okkar biskupsefna. Þær eru:
- Hvert verður þitt fyrsta verk til breytinga verðir þú kjörinn biskup?
- Hvernig hefði kirkjan átt að bregðast við í máli kvennanna sem ásökuðu Ólaf Skúlason biskup um kynferðisbrot árið 1996?
- Hefur þú og/eða myndir þú gefa saman samkynhneigð pör? Vinsamlegast rökstyddu svar þitt.
- Telur þú að allir félagar í þjóðkirkjunni eigi að hafa kosningarétt í biskupskosningum?
- Finnst þér afstaða kirkjunnar til mála hafa byggst um of á bókstafstrú?
Svörin er hægt lesa í Fréttablaðinu. Þau eru líka birt á vefnum Við kjósum okkur biskup – spurningar og svör þar sem er að finna svör okkar við fjölda annarra spurninga.
Ég bið ykkur að veita athygli þessum svörum því í þeim birtist mikilvægur munur á afstöðu okkar sr. Agnesar og því, sem við viljum leggja áherslu á í kirkjustarfinu.