Fimmtudaginn 29. mars, kl. 20 verður efnt til opins fundar í safnaðarheimili Neskirkju um biskupskjör og kirkjumál.
Stuttar framsögur flytja:
- Hreinn Hákonarson, fangaprestur
- Inga Rún Ólafsdóttir, sóknarnefndarformaður og kirkjuþingskona
- Sigurvin Jónsson, æskulýðsprestur
- Jóna Hrönn Bolladóttir, sóknarprestur
Til fundarins boðar stuðningsfólk dr. Sigurðar Árna Þórðarsonar í biskupskjöri.
Fundurinn er öllum opinn, kjörmönnum, sóknarnefndarfólki og öllu áhugafólki um kirkjumál.