Ég kynntist Sigurði Árna Þórðasyni fyrst að einhverju marki þegar ég gekk til liðs við Kór Neskirkju árið 2005. Sem formaður kórsins til nokkurra ára hef ég átt samskipti við prestana og aðra starfsmenn Neskirkju. Við Sigurður erum auk þess nágrannar, eigum jafnaldra syni og síðast en ekki síst þá jarðsöng hann föður minn fyrir fáeinum árum.
Í samskiptum mínum við Sigurð Árna hef ég kynnst mörgum af hans góðu kostum. Hann er einstaklega jákvæður, óspar á hrósið og tekst þess vegna afar vel að hvetja fólk í kringum sig til góðra verka. Þessu höfum við í kórnum fengið að kynnast því Sigurður Árni segir bæði okkur og söfnuðinum sem sækir Neskirkju hversu mikils hann metur okkur og okkar framlag til safnaðarstarfsins og messuhaldsins. Þá sýnir hann starfi okkar virðingu á ýmsan hátt m.a. með því að sækja tónleika kórsins. Þannig eru prestarnir og starfsfólkið í Neskirkju.
Sigurður Árni hefur miklu að miðla og gerir það í ræðu og riti og í samtölum við fólk. Hann er næmur á aðstæður og leggur sig fram um að hlusta og kalla eftir skoðunum fólks. Hann sér það einstaka og jákvæða í orðum og athöfnum manna en kann jaframt að glíma við erfiðleika og ágreining og leiða fram sættir.
Það dylst engum sem hlustað hafa á Sigurð Árna í prédikunum að hann hefur gott vald á íslenskri tungu og leggur mikla rækt við tungumálið. Slíkt ber vitni um hversu vænt honum þykir um móðurmálið og hversu mikilvægt honum finnst að sýna því virðingu og nýta það með sem bestum hætti til þess að koma hugsunum sínum og boðskap á framfæri.
Persónuleiki, menntun, starfsreynsla og lífreynsla gera það að verkum að Sigurður Árni er kjörinn til þess starfs sem hann nú býður sig fram til. Að mínu mati er einn af hans allra mikilvægustu eiginleikum að hann er sannur jafnréttissinni hvort sem það snýst um jafnrétti karla og kvenna eða jafnrétti ýmissa hópa í samfélaginu. Þetta einkenni Sigurðar Árna ásamt getu til að miðla málum og leiða til sátta eru eiginleikar sem gætu skipt sköpum fyrir íslensku þjóðkirkjuna.